Efla dómstóla?

Til hvers, dæma menn í fangelsi sem ekki eru til?  Nú þegar eru fangelsi yfirfull og langur dráttur á því að menn geti setið af sér dóma.

Ramos nokkur Brasilískur lýtalæknir með rán og morð sem sér grein vakti athygli á því í viðtali hversu dásamlegt væri að vera fangi á Íslandi, "svítan" sem hann hefur í Hegningarhúsinu myndi í hans heimalandi hýsa u.þ.b. 30 fanga, hann líkti klefanum við fjögurra stjörnu hótel.

Ég held að það sé nokkuð ljóst af þessu að fangelsi á Íslandi eru vannýtt, mætti að skaðlausu fjölga aðeins í klefunum, þetta á jú að teljast refsing en ekki hvíld í boði hins opinbera.  Svo mætti líka auka fjölbreytni í refsingum, í Bandaríkjunum sá ég fanga í samfélagsþjónustu með skilti á bakinu sem lýsti því að hann væri fangi í samfélagsþjónustu.  Það er nefnilega lítil refsing að afplána dóm án þess að nokkur viti af því.

Einnig mætti fyrir hvítflibba krimma setja upp gapastokka á Austurvelli þar sem heiðvirt fólk gæti t.d. um helgar komið með fjölskylduna og barið þessa kóna augum sér til ánægju og jafnvel fengið að kasta nokkrum eggjum.

Opinberar hýðingar koma líka sterklega til greina fyri minni yfirsjónir. Cool


mbl.is Efla þarf dómstólana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvar í ósköpunum líkti Ramos hegningarhúsinu við hótel? Ég hef séð það, þar er hræðileg aðstaða, öllu verri en á hrauninu/kvíabryggju/kvennafangelsinu, enda einungis ætlað sem stutt gæsluvarðhald. Ætlað. Fangelsismál á Íslandi eru til skammar.

ks (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 16:07

2 Smámynd: Róbert Tómasson

Sæll ks og takk fyrir innlitið

Ramos sagði þetta í símaviðtali við Stöð 2 rétt eftir að hann var fangelsaður.

Róbert Tómasson, 12.9.2009 kl. 17:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Róbert Tómasson
Róbert Tómasson
er ekkert mannlegt óviðkomandi
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 751

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband