Sumar og sæla

Jæja nú er orðið svolítið langt síðan ég lét síðast í mér heyra og ætla ég því að gera smá bragarbót.  Ég er búinn að vera í sumarfríi og sjaldan gert eins lítið, nú heldur maður sig bara heima og hefur það gott.

Aðeins verið að stússast í hestum og langar til þess að láta nokkrar myndir fljóta héðan út sumar sælunni í Grindavík en veðrið hefur heldur betur leikið við okkur núna í óvenjulangan tíma.

P6130056

Hér eru skvísurnar mínar Hjördís Emma og Ólafía Ragna, fóru uppá klett til að fá að vera í friði með bland í poka, en Adam var ekki lengi í paradís fyrst kom eitt trippi og svo...

P6130057

kom annað og fyrr en varði fylgdu fleiri á eftir forvitin um innihald pokanna.

P6130058

Þær stöllur létu sér þetta í léttu rúmi liggja enda alvanar hestum og sérstaklega sú yngri nýbúin að fá gleraugu, en það kom nýlega í ljós að hún er verulega sjónskert og er nú fyrst að sjá veröldina í réttu ljósi.

Merkileg stofnun Tryggingastofnun Ríkisins, Hjördís þarf gleraugu sem kosta rétt tæpar sjötíu þúsund krónur en þau eru +5 á öðru auga og +5,5 á hinu auk leiðréttinga á skekkju.  TR greiðir kr. 8.000,- uppí þá upphæð, ef hún hinsvegar væri heyrnarskert og þyrfti heyrnartæki fengist það greitt að fullu, eins og ég sagði merkileg stofnun.

kveðja Róbert

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Skemmtilegar myndir.

Hrönn Sigurðardóttir, 17.6.2009 kl. 16:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Róbert Tómasson
Róbert Tómasson
er ekkert mannlegt óviðkomandi
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 770

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband