LJúga ekki syndum á sjálfa sig -

frekar en Jón sálugi í Gullnahliðinu, en hver er lygarinn og hverjum á að trúa?  Ég væri hauga helv. lygari ef ég segðist trúa einhverjum af þessu paríerum, þeir eru álíka trúverðugir og auglýsing frá helvíti sem biði upp á eilíft líf í 30 stiga hita.

Leifum þeim að ljúga syndum á hvor annan en lokum þá inni á meðan svo við hin fáum frið.  Svo skora ég á menn að vera ekki að grýta eggjum í Alþingishúsið, grýtum alþingismennina og höfum þau harðsoðin.Halo


mbl.is FME: Upplýsti ekki ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ísland byggir ekki bara landfræðilega einangruð þjóð heldur félagslega ákaflega þröngsýn og ónæg þjóð. Við höfum byggt nýjari heimsmynd okkar á amerískum bíómyndum, broguðum fréttum af helstu heimsviðburðum og stuttum skemmtiferðum til helstu staða í útlöndum. Í stað þess að öðlast félagslegan þroska við þetta, áskotnast okkur öfund og minnimáttarkend gagnvart öðrum þjóðum. Við skiljum ekki afhverju við höfum ekki svo stórbrotna menningu, sögu og ríkidæmi sem aðrar þjóðir. Við verðum reið og vonsvikin yfir að okkar er ekki getið við hliðina á þjóðum sem eru margfallt stærri en okkar þjóð. Við gleðjumst sem börn yfir að eitthvað kemur okkur á blað heimsins. Sama hvað það er. Ágirndin eftir þeim sýnilega auði sem birtist okkur allstaðar, nema á Íslandi kæfir alla sýn á að auður er huglægur, viska, hófstilling, hugrekki og rættlæti og ekki minnst trú, von og kærleikur.

Í þröngsýni okkar sjáum við aðeins eina leið fram. Sama hvað það kostar, verðum við að afla virðingar annara þjóða. Tækifærið kemur svo þegar við lánum auðinn af öðrum þjóðum. Við hreykjum okkur hátt og lokum eyrunum við aðvörunarröddum. Allt það sem hefur raunverulegt gildi er nú fleygt á skarnhauginn í svikullu ofgnóttarsamfélagi pappírspeninga, hroka og mikilmennskubrjálæðis. Við viljum velta okkur upp úr munaði svo allir taki eftir okkur og sjá að við virkilega erum mikilmenni og okkar litla þjóð er betri og stærri en allar aðrar.

En svo gerist það versta, óprúttnir aðilar hafa gengið á lagið og nýtt sér heimsku okkar og yfirborðsskap. Með að skaffa okkur hillingar og falsk stolts, hafa þeir rakað til sín erfiði kynslóðanna. Ekki bara feðra heldur einnig barna okkar um langa framtíð. Raunveruleikin birtist nú kaldur og hrottalegur. Þau gildi sem héldu þjóðinni uppi í aldir eru í burtu. Falski auðurinn er einnig floginn veg allrar veraldar. Ekkert bíður annað en andleg vesöld og volæði. Það versta er, að allt sem við vildum var virðing annara þjóða. En við höfðum aðeins fjarlægst hana ennþá meira. Við aularnir norður í höfum létum glepjast af nýju fötum keisarans. Nú mistum við alla þá virðingu sem okkur hafði áskotnast með dugnaði forfeðra okkar og nægjusemi. Hvernig getum við lifað áfram og séð framan í heiminn og okkur sjálf? Hvernig getum við séð framan í börn okkar og barnabörn? Við höfum stundað allar höfuðsyndinar af kappi og vantar aðeins eina til að fullgera myndina. "Leti".

Ó nei, nei og nei... ef eitthvað, þá erum við ekki löt! Afskiptaleysi og heigulsháttur er ekki það sem þessi þjóð er þekkt fyrir! Við getum bjargað því sem bjargað verður með að bretta upp ermarnar. Við höfum gert það áður. Við getum stolt viðurkennt afglöp okkar og tekist á við vandann. Við getum sem forfeður okkar borgað okkar skuldir. Engin skal segja, að okkur sé sama og við ekkert gerum. Við verðum að sýna að þessi þjóð beygir sig ekki í duftið fyrir eigin broguðu spegilmynd heldur stolt sér hlutina eins og þeir eru og tekst á við vandann. Með visku, hófstillingu, hugrekki, réttlæti, von, trú og kærleik getum við aflað okkur virðingu fyrir okkur sjálfum. Það er forsendan fyrir að aðrir fá virðingu fyir okkur. Við verðum að sýna að okkur sé ekki sama! Við verðum að sýna umheiminum að okkur er ekki sama! Við verðum að hreinsa aurinn upp eftir okkur, losa okkur við afæturnar og alla keisaranna. Það verður að gerast nú, áður en letin tekur yfirhöndina og kæfir þjóðina í ösku og eimyrju vonleysisins.

Thor Svensson (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 20:59

2 Smámynd: Jens Guð

  Vá!  Thor svarar bara fyrir alla sem ætluðu að senda inn "komment".  Elegant.

Jens Guð, 9.11.2008 kl. 21:01

3 Smámynd: Róbert Tómasson

Þarna hittir þú naglann á höfuðið Thor, ekki einu sinni heldur aftur og aftur.

Það er ekkert til í þessum heimi sem heitir auðveldir peningar (easy money) heldur þarf að hafa fyrir hverri krónu.  Það er hægt að selja sálina fyrir auðfengnum peningum en æ sér gjöf til gjalda svo það er eins og að pissa í skóinn sinn, það yljar í smá stund en síðan frýs allt.

Og hver borgar svo brúsann, jú sá sem fékk minnstu bitana sem hrutu af alsnægðar borðum aðalsins.

Við hefðum betur haldið okkur við það sem við kunnum best, að yrkja harðbýlt land og fagna gjöfum hafsins, það þýðir sveittur skrokkur og aumir vöðvar en krónurnar sem krafsast upp, fáar að vísu eru þó heiðarlegar og gjaldgengar hvar sem er.

Róbert Tómasson, 9.11.2008 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Róbert Tómasson
Róbert Tómasson
er ekkert mannlegt óviðkomandi
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 781

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband