17.7.2007 | 15:50
Imba Sól og Simmi P hönd í hönd
En hvað þetta er eitthvað sætt, eða hvað finnst ykkur. Þarna stendur hún Ingibjörg okkar skælbrosandi og heilsar hryðjuverkamanni eins og ekkert sé. Væri ekki nær að hún heilsaði honum að sjómanna sið eins og Árni Johnsen heilsaði forðum.
Og hver er svo tilgangurinn? Jú það er verið að reyna að troða okkur í öryggisráð sameinuðu þjóðanna með ærnum tilkostnaði, greinilegt að þrátt fyrir öll stóru orðin þá hefur ekkert lærst af því að sitja á lista hinna staðföstu þjóða sem dregnar voru á asnaeyrum til að þóknast Bush og co.
Í mínum huga verður þetta henni ekki til framdráttar, frekar á hinn veginn
Ingibjörg Sólrún á fundi með Peres | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er raunveruleikinn sem Peres býr við :
Svona loka margir vestrænir leiðtogar augunum fyrir hryðjuverkunum í þessum heimshluta og andrúminu :
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 17.7.2007 kl. 17:42
Raunveruleikan sem Ísraelsmenn búa við í hafa þeir að mestu kallað yfir sig sjálfir með yfirgangi og gríðarlegri hörku. Það getur enginn afsakað það sem yfir þá gekk í seinni heimstyrjöldinni, en þeir hafa líka nýtt sér það í botn og hreinlega gert út á samúð heimsins.
Ef ekki væri þessi sektarkennd á heimsvísu ásamt gríðarlegu peninga valdi á bak við Ísraelsríki hefðu þeir aldrei komist upp með framkomu sína gagnvart nágrönnum sínum sem sumir hverjir voru hraktir af landsvæðum sínum svo Ísraelsríki kæmist fyrir.
Róbert Tómasson, 17.7.2007 kl. 18:39
Róbert: Þú þyrftir að kynna þér betur sagnfræðina í sambandi við það sem þú segir. Þá kæmist þú að raun um að þú ert að tala tóma steypu.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 17.7.2007 kl. 19:17
Þegar ég var krakki og unglingur heyrði ég og sá hvergi nema jákvæða umræðu um aumingja gyðingana sem nasistar og fleiri höfðu verið vondir við. Dáðst var að því hvernig þessi hrjáði trúarhópur (gyðingar eru ekki eiginlegur kynstofn) byggði upp sitt Ísraelsríki. Maður heyrði fréttir af því að voldug arabaríki hafi ráðist á Ísrael í 6 daga stríðinu og dáðst var að því hvernig gyðingar vörðust og höfðu sigur.
Það var varla fyrr en seint á áttunda áratugnum eða síðar sem ég fyrst heyrði eitthvað neikvætt um Ísrael. Á allra síðustu árum hefur sannleikurinn komið í ljós. Forystumenn Ísraels hafa gengið inn í hlutverka nasista með öfugum formerkjum. Forystumenn Ísraels og ísraelski herinn eru í hlutverki nasista við að kúga og ofsækja Palestínumenn.
6 daga stríðið var hafið af Ísraelher. Palestínumenn sæta ofsóknum í eigin landi. Þeir eru rammaðir af í gettóum með aðskilnaðarmúr. Þeir eru pyntaðir í ísraelskum fangelsum. Vatnsból þeirra eru viljandi menguð af ísraelsku nasistunum. Ísraelskir hermenn og almenningur hefur skotleyfi á Palestínumenn. Þeir ísraelsku leika sér að því að slátra Palestínumönnum án þess að vera sóttir til saka.
Með aðskilnaðarmúrnum eru Palestínumenn útilokaðir frá bústofni sínum, ræktarlandi, vatnsbólum o.s.frv. Engin "þjóð" eða ríki hefur brotið jafn oft og mörgum sinnum gegn samþykktum Sameinuðu þjóðanna og Ísrael.
Ísrael er stríðsglæparíki. Ísrael er næst mesta hryðjuverkaríki heims á eftir Bandaríkjunum. Ísrael er nasistaríki.
Jens Guð, 17.7.2007 kl. 23:57
Heyr heyr Jens!
Hrönn Sigurðardóttir, 18.7.2007 kl. 00:02
Smá sagnfræði fyrir Predikarann
Ísraelsríki sett á stofn í Bresku hluta Palestínu þann 14. maí 1948 með stuðningi Sameinuðu þjóðanna samanber ályktun 181 um skiptingu Palestínu milli Gyðinga og Palestínu manna. Herveldi Ísraela hefur verið byggt upp af BNA mönnum og Bretum og fjármagnað að stórum hluta af Bandarískum auðkýfingum af Gyðinga ættum. Þeir hafa vissulega orðið fyrir árásum nágranna þjóða sem líta á þá sem aðskotadýr og orðið að verja sig, en þeir hafa líka notað þau tækifæri til að þenja út ríki sitt, og með því að skilgreina menn og konur ( sem í öðrum ríkjum svo sem BNA 1776 og Grikklandi, Frakklandi og Noregi í seinni heimstyrjöldinni svo örfá dæmi séu tekin hafa verið kallaðar frelsishetjur ), sem hryðjuverkamenn, hafa þeir farið offari í að verja sig og engu skeytt um það hverjir hafa fallið fyrir kúlunum þeirra (menn, konur og börn).
Og í sambandi við samúðar sníkjur stend ég þar við hvert einasta orð.
Róbert Tómasson, 18.7.2007 kl. 00:06
allt annað og allsendis óskylt......
....ég væri alveg til í að vera þarna með henni
Verður mér nú grýtt í innstu myrkur?
Hrönn Sigurðardóttir, 20.7.2007 kl. 20:30
....eða heita það yztu myrkur?
Hvort er dimmara?
heheehheeh
Hrönn Sigurðardóttir, 20.7.2007 kl. 20:48
Hvort er dimmara fer sjálfsagt eftir innrætinu, ég er þokkalega vissum að í þínu tilfelli er það , það ysta, það vona ég allavega.
Róbert Tómasson, 22.7.2007 kl. 21:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.