2.7.2007 | 21:23
hummm errrfitttt
Jæja þá þeir ræddust við Pútín og Bush og reyndu að komast að niðurstöðu um eldflaugavarnarkerfi og komust að sjálfsögðu ekki að samkomulagi. Skrítið maður
, sérstaklega þegar blaðamenn virðast ganga út frá því að Bush geti hugsað, hann hefur allavega ekki sýnt það enn. Maður sér stundum Bush í sjónvarpsviðtölum frosinn eins og Windows kerfi og þá ímynda ég mér oft að hann sé að hugsa, og af því að ég á það til að hugsa svolítið myndrænt og er púki í mér, þá sé ég eftirfarandi gerast.... Í augum hans sjást eftirfarandi skilaboð. "Í augnablikinu getur verið slökkt á Bush, hann utan þjónustusvæðis eða heilasellan upptekin". Inní hausnum gerist eftirfarandi, tannhjólin fara að snúast þau eru drifin áfram af hamstri sem hleypur í hjóli og þegar hann svo stoppar detta örlítil korn úr óæðri endanum á honum og "voila" hugmynd er fædd. Og svo hefur þessi maður yfirráð öflugustu hermaskínu heimsins í höndum sér. Í lok fréttarinnar segist hann telja að Pútín sé heiðarlegur hehe best að kommenta ekkert á það, það er efniviður í heila bók og ef hún kæmi út yrði höfundurinn sjálfsagt geislavirkur.


![]() |
Pútín og Bush komust ekki að samkomulagi um eldflaugavarnarkerfi í Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hehehehehe gvöð hvað ég er fegin að þú hefur ekki séð mig hugsa..........
Hrönn Sigurðardóttir, 2.7.2007 kl. 23:24
Ég er viss um að þú lítur bara nokkuð gáfulega út Hrönn, ef maður afturá móti vill sjá eitthvað ámóta sauðasvipnum á Bush þarf maður að fara niður í einfrumunga.
Róbert Tómasson, 3.7.2007 kl. 07:37
....kona reynir, Róbert
tíhí
Hrönn Sigurðardóttir, 5.7.2007 kl. 00:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.